Así gerir kröfu á ksí

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir eðlilegt að gera þá kröfu til KSÍ sem lýðræðislegrar íþróttahreyfingar að sambandið standi vörð um mannréttindi.  Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi í gærkvöld þar sem spillingarmál Alþjóðaknattspyrnusambandsins voru til umræðu.


Gylfi segir íþróttahreyfinguna vera uppeldisstöð sem foreldrar trúi fyrir börnum sínum og þar verði íþróttafélög að vera í fararbroddi sjálfsagðra gilda eins og mannréttinda og virðingu fyrir mannslífum.  ASÍ sé tilbúið í samstarf sé vilji innan KSÍ að láta meira að sér kveða á þeim vettvangi innan alþjóðasambandsins.


Margrét Steinarsdóttir hjá Mannréttindastofu var sessunautur Gylfa í þættinum í kvöld og sagði að HM í knattspyrnu hafi alltaf verið vettvangur fyrir mansal og vændi. Ýmsar kvennahreyfingar og mannréttindahreyfingar hefðu vakið athygli á því mansali sem tíðkaðist á mótum FIFA og hefði í reynd verið skipulagt fyrir opnum tjöldum í sambandi við HM í Þýskalandi 2006.  Það þurfi því ekki keppni í Rússlandi og Katar til að leita mannréttindabrota og mansals í sambandi við undirbúning HM. Hins vegar hafi fregnir af aðbúnaði farandverkamanna, þrælahaldi og mansali náð hærri hæðum í Katar þar sem virðist vera fórnað fjölda mannslífa við uppbyggingu mannvirkja í tengslum við heimsmeistaramótið og það hljóti að lita fótboltann sem íþrótt.


Heimsljós má sjá í heild sknni á hringbfraut.is, svo og styttri klippur úr honum.