Así fagnar tillögum vegna brotastarfsemi á vinnumarkaði

Alþýðusamband Íslands fagnar niðurstöðu starfshóps aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda sem voru algjörlega einróma í tillögum sínum sem miða að því að sporna við brotastarfsemi á vinnumarkaði. ASÍ segir tillögur sínar um úrbætur hafa hlotið mikinn hljómgrunn í þeirri vinnu og að áralöng barátta sambandsins gegn athæfi svindlara virðist því hafa skilað árangri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ.

Helstu tillögur starfshópsins eru:

  • Sett verði lög sem hafa að markmiði að stöðva kennitöluflakk og misnotkun félögum með takmarkaða ábyrgð (hlutafélög og einkahlutafélög). Þar verði horft til sameiginlegra tillagna ASÍ og SA.
  • Heimild til að setja forsvarsmenn fyrirtækja í tímabundið bann við þátttöku í stjórnun félaga með takmarkaða ábyrgð við tilteknar aðstæður (atvinnurekstrarbann).
  • Tryggð verði viðeigandi aðstoð og vernd fyrir fórnarlömb vinnumansals og nauðungarvinnu.
  • Sett verði skylda til keðjuábyrgðar í lög um opinber innkaup.
  • Komið verði í veg fyrir brotastarfsemi á vinnumarkaði undir formerkjum starfsnáms eða sjálfboðaliðastarfsemi.
  • Þau stjórnvöld sem fara með valdheimildir á vinnumarkaði (Lögreglan, Ríkisskattstjóri, Vinnueftirlitið, Vinnumálastofnun) og aðilar vinnumarkaðarins geri með sér formlegt samkomulag um skipulegt samstarf gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði.
  • Refsiábyrgð lögaðila og fyrirsvarsmanna vegna ítrekaðra brota gegn starfsmönnum verði útvíkkuð.
  • Bætt verði verulega upplýsingagjöf til erlendra starfsmanna, t.a.m. með stofnun ráðgjafarstofu og aukinni upplýsingagjöf á vefnum.

Í tilkynningunni segir að brotastarfsemi á borð við kennitöluflakk og mansal sé óásættanleg meinsemd á íslenskum vinnumarkaði og að slík háttsemi hafi alvarleg og víðtæk áhrif fyrir launafólk, atvinnulífið og samfélagið allt, auk þess að valda bæði persónulegu og samfélagslegu tjóni. ASÍ segist á undanförnum árum hafa opinberað margar ljótar sögur af glæpastarfsemi á vinnumarkaði en á sama tíma gagnrýnt andvaraleysi og ótrúlegt langlundargeð stjórnvalda gagnvart slíkum brotum.

ASÍ leggur til að löggjöf og regluramminn verði treystur og bætt úr núverandi göllum. Þá er lagt til að samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins gegn svikastarfseminni verði formbundið til framtíðar.

Sambandið gerir einnig kröfur til þess að tillögunum verði fylgt fast eftir. Mörgum þeirra má þegar hrinda í framkvæmd á meðan aðrar kalla á frekari vinnu og útfærslur. Til að svo megi verða þarf pólitískan vilja og skuldbindingu stjórnvalda.

Að lokum kemur fram að ASÍ muni í viðræðum við stjórnvöld, í tengslum við gerð kjarasamninga, leggja ríka áherslu að allt verði gert til að sporna við félagslegum undirboðum, mansali og annarri brotastarfsemi á vinnumarkaði.

Yfirlýsingu ASÍ vegna málsins má lesa hér.