Ásgerður vill fækka bæjarstjórnarfundum

Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi, sem verið hefur einráður í bæjarstjórn bæjarins um ríflega sextíu ára skeið, hefur nú lagt fram í bæjarstjórn tillögu um að bæjarstjórnarfundum verði fækkað um helming. Í kosningunum í vor fékk flokkurinn um 46% atkvæða, en náði að hanga á meirihluta bæjarfulltrúa vegna atkvæða sem féllu dauð. Til að herða tökin á málefnum bæjarins vill meirihlutinn nú fækka bæjarstjórnarfundum og færa þannig meiri völd til bæjarráðs og bæjarstjóra. Í bæjarráði sitja tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og einn fulltrúi minnihlutans. 

Sú venja hefur skapast að báðir minnihlutaflokkarnir hafi fulltrúa í bæjarráði, en nú ber svo við að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki ljáð máls á því að leyfa fulltrúa N-listans að eiga áheyrnarfulltrúa í bæjarráði. Þannig mun fækkun bæjarstjórnarfunda þýða að aðkoma minnihlutans takmarkast við mánaðarlega bæjarstjórnarfundi, fái Sjálfstæðisflokkurinn sínu framgengt. 

Mikil óánægja hefur ríkt meðal foreldra ungra barna á Seltjarnarnesi í sumar vegna brotinna loforða gagnvart stórum hópi barna sem búið var að lofa leikskólaplássum sem hvorki var búið að byggja, né manna. Margt bendir til þess að bæjarstjóri Seltjarnarness ætli sé að loka dyrunum að bæjarskrifstofunni og einangra sig frá gagnrýnisröddum með því að fækka fundum þar sem sjónarmið andstæð hennar eigin fá að heyrast.