Ásdís birtir samskiptin við herra x af tinder: flottur og skemmtilegur - „ætti erfitt með að sjá á eftir manninum mínum upp í rúm með annarri konu“

Ásdís Olsen fjallar um nýju kynlífsbyltinguna, Tantra og Polyamorous sambönd í þættinum Undir yfirborðið sem sýndur er á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 20:00 á morgun. Í þættinum er rætt við fólk sem lifir ekki  hefðbundnu ástarlífi.

„Ég var sjálf með bullandi fordóma,“ segir Ásdís Olsen umsjónarmaður þáttanna og bætir við: „Ég sá fyrir mér aftengda spennufíkla á höttunum eftir skyndikynnum sem tækju lítið tillit til tilfinninga fólks. En lítið vissi ég.“

Þegar kom að því að skoða Polyamorous sambönd þar sem bæði hjónin eru í öðrum samböndum og eiga hugsanlega líka í skyndikynnum og annarskonar kynlífs- og ástarsamböndum aflaði Ásdís sér upplýsingar í gegnum Tinder.

„Ég fór á Tinder um daginn, sem er eins og allir vita stefnumótaapp og lenti í mjög áhugaverðu samtali við mann sem sagðist vera Polyamorous.  Hann aðhyllist s.s. ekki einkvæni heldur hefur áhuga á ástar- og kynlífssambandi við fleiri en eina manneskju. Hér fyrir neðan má lesa samtalið:“

Hr. X: Annars vegar er ég fjölkær (polyamorous) og hins vegar er ég gefinn fyrir BDSM.
 
Ég: Það er áhugavert -- mér finnst spennandi hugmynd að vera ekki bundinn og háður annari manneskju.
 
Hr. X: Ég er sammála því að „háður“ sé alls ekki spennandi – „bundinn“ hins vegar alveg eftir samhengi, sbr. hina sérviskuna mína.
 
Ég:  Hahahahaha – þú ert fyndinn. Hvernig virkar Polyamorus --- hvers vegna velurðu það? Flestir hafa mikla þörf fyrir öryggistengsl -- og það má leiða að því líkum að við séum öll að leita að ást (being loved) sem er þá einhverskonar samþykki og upplifunin af því að tilheyra.
 
Hr. X: Ég fór inn á braut „ethical non-monogamy“ þegar við fyrrverandi konan mín ákváðum að opna samband okkar, fyrir rúmum þremur árum. Mér fannst þetta fljótt mjög rétt fyrir mig, þótt það sé ekki alltaf einfalt. Þetta með öryggistengsl er góður punktur, því það er vissulega hætt við að þau séu minni með þessu móti. Hins vegar þarf alls ekki að vanta ást, nema síður sé, þó það komi svo líka á móti að það þarf ekki endilega að vera krafa um hana, sérstaklega í „relationship anarchy“, sem ég er frekar hallur undir. Sem stendur er ég í einu ástríku sambandi við konu sem ég bý ekki með, og við höfum engin plön um slíkt.

Ég:  Ég er samt hrædd um að ég ætti erfitt með að sjá á eftir manninum mínum upp í rúm með annarri konu. 
 
Hr. X: Það má vinna með slíkar tilfinningar – en eins og þetta virkar hjá mér og kærustunni þá erum við mjög náin, elskum hvort annað og stefnum að því að vera saman til æviloka. Ekkert af því kemur hins vegar í veg fyrir að við höfum fullt frelsi hvort um sig til að hitta annað fólk og ef þannig ber undir eiga tilfallandi kynni við það eða stofna til sambanda við það. Samböndin þurfa alls ekki að vera eins, og geta í raun verið hvernig sem fólkið sem í þeim á vill hafa þau.   Við höfum það þannig að ef við erum að fara að hitta annan aðila eða erum farin að eiga í miklum netsamskiptum sem virðast líkleg til að stefna í eitthvað, þá segjum við hinu frá því. Ef við hittum annað fólk til að eiga í einhverju líkamlegu sambandi við þá segjum við hinu frá því fyrir fram ef það er planað, eftir á ef það er eitthvað sem gerist með litlum fyrirvara. Við erum samt ekkert að ræða í smáatriðum hvað fer á milli okkar og annars fólks. Það að hafandi prófað þetta þá finnst mér annað heftandi, og útiloka allskyns möguleika að óþörfu.

Ég finn ekki til þess að það að eiga í sambandi við eina manneskju dragi úr gildi sambands míns við aðra manneskju, ekki frekar en ein vinátta dregur úr annarri. Enda notar fjölkært fólk gjarnan merkið sem ég er með á Tinder-prófílnum: samofið hjarta og óendanleikamerki. Kærleikur er ekki takmörkuð auðlind (þótt tími og orka séu það vissulega).

Á BDSM-vettvangnum er ég switch, s.s. bæði/ýmist drottnandi eða undirgefinn. Þetta hefur mismunandi birtingarmyndir gagnvart mismunandi mökum/leikfélögum, eftir því hvernig þær eru innstilltar í þessum efnum. Þar sem ég hef ríka þörf fyrir báðar hliðarnar, þá gefur fjölkærið möguleika á að fá útrás fyrir þær í mismunandi samböndum. T.a.m. er ég að þessu leyti drottnandi í sambandinu sem ég er núna í, en finn fyrir mikilli vöntun á útrás fyrir hina hliðina. Þar af leiðandi er ég aðallega (en ekki endilega eingöngu) á höttunum eftir sambandi þar sem það væri uppi á teningnum.

Ég sagð honum síðan að ég ætlaði að gera sjónvarpsþætti um Polyamorous og Tantra og nýja strauma í ástarlífi og sambandsmálum – og spurði hvort hann vildi koma í viðtal.

Hr. X: Ég er að mestu leyti í skápnum, og held að jafnvel nafnlaust viðtal væri stór þröskuldur. Þér er hins vegar klárlega heimilt að vísa (nafnlaust) til þess sem ég hef sagt þér, og jafnframt að spyrja mig frekar.

„Sem sagt. mjög flottur, skemmtilegu og meðvitaður maður.  En hann er ennþá inni í skápnum – eins og hann orðar það -- og af hverju ætli það sé?“ spyr Ásdís.

Þátturinn er sýndur annað kvöld á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 20:00.