Ásakanir í eyjum um uppgjöf fyrir ríkinu

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum telja rangt hjá fulltrúum meirihluta Eyjalistans og H-lista að fara að kröfum sveitastjórnarráðuneytisins og fella niður afslætti á fasteignagjöldum til eldri borgara.

„Á engum tímapunkti var haft samráð við bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins né þau upplýst um fyrirætlaða uppgjöf meirihlutans í hagsmunabaráttu fyrir bættum kjörum eldri borgara gegn ósanngjörnum kröfum ríkisvaldsins,“ segir í bókun sjálfstæðismanna í bæjarstjórn á fimmtudag þar sem samþykkt var að fella niður afslættina.

Málið hafði verið rætt í bæjarráði 17. október. Vísað var í álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um að ákvarðnir þáverandi meirihluta sjálfstæðismanna um niðurfellingu fasteignagjalda hjá íbúum sveitarfélagsins sjötíu ára og eldri hafi ekki staðist lög.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/asakanir-i-eyjum-um-uppgjoef-fyrir-rikinu