Í dag eru stundaðar fjöldi rannsókna í Bláa lóninu á lækningamætti jarðsjávarins, lífvirkni innihaldsefna og vistkerfisrannsóknir. Lækningamáttur efnis ,sem þörunga hjá Bláa lóninu framleiða, var staðfestur með klínískum rannsóknum. Nýjar rannsóknir hjá fyrirtækinu gefa vísbendingar um að efnið hafi jákvæð áhrif á ónæmiskerfið og minnkar umtalsvert bólgur Psóríasis-sjúklinga. Fram undan eru enn frekari rannsóknir hjá vísindamönnum Bláa lónsins á bólguhemjandi virkni þörunganna. Framtíðin á eftir að leiða í ljós hvort fyrirtækið komi til með að framleiða lyf sem gagnast fólki með húðsjúkdóma.
Ása Brynjólfsdóttir, rannsókna- og þróunarstjóri Bláa Lónsins, segir að fyrirtækið hafi alltaf haft það að markmiði að koma óspilltum áhrifum þörunganna á svæðinu heim til fólks.
„Fyrstu árin unnum við að því að rannsaka þessar sögur sem fólk sagði af bata sínum. Það greindi til dæmis frá því að það skipti máli að bera kísilinn á húðina og lýstu því að húðin yrði mýkri og greri hraðar. Við rekum meðferðarstöð fyrir psóríasis-sjúklinga og fólk vildi geta tekið kísilinn með sér heim. Læknisstarfsemin ýtti undir vöruþróunina. Áskorun okkar var þessi: Hvernig ætluðum við að koma óspilltum áhrifum náttúruauðlindarinnar heim til fólks? Við ákváðum að vera trú upprunanum og halda í hreinleikann. Við höfum ekki haggast í þeirri afstöðu okkar öll þessi ár,“ segir Ása í samtali við Fréttablaðið.
Þá segir hún að Bláa lónið vinni náið með vísindamönnum og húðlæknum í Þýskalandi varðandi þróun á vörunum þeirra. Eru vísindamennirnir sérstaklega að skoða hvernig þörungarnir örva nýmyndun á kollageni, en það efni ver húðina fyrir geislum sólarinnar.
„Við unnum með stórum dreifingaraðila og vörunum var dreift í gegnum apótek í Þýskalandi á upphafsárum okkar. Þannig komumst við í tengsl við þarlenda vísindamenn og húðlækna sem hafa unnið með okkur síðan þá að lífvirknirannsóknum á vörum okkar. Þessir samstarfsaðilar hafa sérhæft sig í öldrun húðarinnar og áhrifum umhverfisins á hana. Það hefur vakið sérstakan áhuga þeirra hvernig Bláa Lóns þörungarnir virka gegn öldrun húðar og vernda kollagenforða hennar. Kollagen er burðarefnið í húðinni okkar og það minnkar um 1% á ári frá tvítugsaldri. Því meira sem við erum í sólinni því meira brotnar það niður. Þýsku samstarfsaðilarnir hafa skoðað hvernig þörungarnir örva nýmyndun á kollageni og verji húðina fyrir niðurbroti á kollageni sem verður fyrir tilstuðlan sólarinnar. Þetta var upphaflega skoðað í frumulíkönum og það komu mjög spennandi niðurstöður úr þeim rannsóknum.“
Að lokum segir Ása að þau hefðu getað notast við efnavörur í vinnslu sinni á vörum frá fyrirtækinu, en þau vilji frekar að varan sé eingöngu úr náttúrulegum afurðum.
„Við hefðum getað valið aðrar leiðir sem hefðu kostað minna og verið fljótlegri. Til dæmis með því að nota efnavörur sem fella kísilinn út en við vildum leyfa þessu að gerast á náttúrulegan hátt og vernda gæðin og hreinleikann. Enda er það svo að kísillinn er einn besti andlitshreinsir sem þú getur fengið. Hann hefur svo mikla upptökueiginleika, og ef við hefðum farið aðra leið þá værum við hrædd um að missa þá eiginleika. Hann hreinsar óhreinindi húðar og sýna rannsóknir að kísillinn styrkir efsta varnarlagið og jafnar áferð húðar.“