Launakjör bankastjóra þriggja stóru viðskiptabankanna eru æði misjöfn; Höskuldur Ólafsson í Arion banka ber mest úr býtum með 4,5 milljónir á mánuði en Steinþór Pálsson í Landsbankanum fær 1,6 milljón fyrir sömu vinnu.
Athygli vekur að jafnvel Már Guðmundsson Seðlabankastjóri er betur launaður en Steinþór Pálsson en Már fær 1,7 milljón króna í laun á mánuði. Birna Einarsdóttir í Íslandsbanka er með ríflega 3,6 milljónir á mánuði og Sigurður Atli Jónsson í MP/STraumi er með sléttar þrjár milljónir.
Af kunnum starfsmönnum fjármálafyrirtækja sem eru með meira en tvær milljónir króna í mánaðarlaun má nefna Sigurð Hannesson í Straumi með 2,8 milljónir, Viðar Þorkelsson hjá Valitor með 2,7 milljónir, Hauk Oddsson í Borgun með 2,6 milljónir og Sigurð B. Stefánsson í Landsbanka með 2,4 milljónir, eða sem nemur 800 þúsund krónum betur en bankastjóri sama banka.
Guðmundur B. Magnússon sparisjóðsstjóri á Ströndum rekur lestina á lista tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir launakjör starfsmanna fjármálafyrirtækja en hann er með 746 þúsund í mánaðarlaun.
Á þessum launalista blaðsins eru um 350 starfsmenn fjármálafyrirtækja; 80 þeirra eru með meira en tvær milljónir í mánaðarlaun, 200 þeirra eru með meira en milljón á mánuði og um 60 með mánaðarlaun undir einni milljón króna.