Ársfundur seðlabanka íslands

Í ár eru sextíu ár frá því fyrstu skref voru stigin í átt að sjálfstæðri seðlabankastarfsemi hér landi. Það var gert með aðskilnaði innan Landsbanka Íslands þegar bankanum var skipt i tvær sjálfstæðar einingar; Seðlabanka Íslands (SÍ) og Viðskiptabanka. Þetta var rifjað upp á ársfundi SÍ hinn 30.mars sl. 

Seðlabankinn var án nokkurra tengsla við Landsbankan. Þetta var nauðsynlegt að gera árið 1957 til að styrkja stjórn peningamála. Hlutverk SÍ var gert víðtækt.

Bankinn skyldi hafa nána samvinnu við ríkisstjórnir á hverjum tíma og gera þeim grein fyrir skoðunum sínum. Þó væri bankanum rétt sem sjálfstæðum og sérfóðum aðila að halda fram skoðunum sínum. Jafnvel þótt um ágreining við ríkisstjórn væri að ræða. Endanlegt ákvörðunarvald um stefnur í efnahagsmálum hlyti þó ætíð að vera hjá ríkisstjórnumi. Undir það beygir SÍ sig að lokum. 

Stærstu átaksverkefni SÍ undanfarin misseri eru tengd losun fjármagsnhafta á grunni þeirrar áætlunar sem fyrst var kynnt árið 2015. Fyrsti áfanginn var úrlausn slitabúa fallinna viðskiptabanka og sparisjóða. Annar áfanginn var afmörkun og úrlausn aflandskrónueigna. Sá þriðji var almenn losun fjármagsnhafta á heimili og fyrirtæki. Full losun hafta varð svo fyrr á þessu ári.