Aron Kristjánsson er hættur störfum sem landsliðsþjálfari karla í handknattleik.
Þetta kom fram á fréttamannafundi fyrir andartaki.
Afhroð Íslendinga á EM, þar sem liðið var sent heim eftir þrjá leiki, spilar eflaust stóra rullu í þessu samhengi.
Sjálfur segist Aron ekki vita hvaða verkefni bíði hans.
HSÍ er að kanna val á erlendum þjálfara sem næsta handboltaeinvaldi en þó er ekki útlokað að Íslendingur verði valinn.