Áróðurinn líkastur upplýsingaþvætti

Þorsteinn Pálsson segir í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is að áróður andstæðinga ESB-aðildar minni á stundum á hringrás villandi upplýsinga sem líklega megi allt eins kalla upplýsingaþvætti.

Tilefni skrifa Þorsteins eru skrif breska lávarðarins Matt Ridley, en hann hafi verið hér á landi nýverið og skrifað eftir það grein í The Times þar sem hann bar saman stöðu Grikklands og Íslands. Hún hafi greinilega verið til heimabrúks og átt að sýna Bretum að hægara væri að standa utan ESB en innan þess; gallinn við greinina sé aftur á móti sá að Matt Ridley hafi augljóslega verið mataður á kolröngum upplýsingum um stöðu Íslands á ferð sinni um landið. Í allra einföldustu mynd skrifi Ridley í þá veru að það sé heitt á Íslandi en kalt í Grikklandi og þegar af þeim ástæðum sé betra að vera utan ESB.

Þorsteinn minnir á augljósan mun á stöðu þessara tveggja landa: \"Annars vegar sprakk bólan hér miklu fyrr en í Grikklandi. Við erum því eðlilega á undan að ná bata. Hins vegar var gríska bólan miklu stærri en sú íslenska og kerfislegur vandi Grikkja dýpri. Af sjálfu leiðir að batinn tekur lengri tíma.\"

Hann segir Ridley staðhæfa að krónan hafi hjálpað Íslandi, en evran ekki Grikkjum: \"En var hrun krónunnar bjargráð,\" spyr Þorsteinn og skrifar áfram: \"Nær lagi er að segja að hrun krónunnar hafi verið ein af  mörgum ástæðum sem flýtti fyrir falli skuldsettra banka. Hún kom tveimur þriðju hlutum fyrirtækja tæknilega í gjaldþrot og helmingur heimila í landinu skuldaði allt í einu meira í íbúðum sínum en nam verðmæti þeirra.\"

Og hann spyr enn: \"Felldum við krónuna? Nei. Seðlabankinn gerði allt sem hann gat til að verja gengi hennar en varð að gefast upp fyrir afli markaðarins. Eina ráðið sem dugði gegn kröftum markaðarins voru höft. Fyrir hrun styrktist krónan allt of mikið. Seðlabankinn réði ekki við það. Írar lentu í miklum vandræðum og fóru „evrópsku leiðina.“ Þeir náðu fyrr að byggja upp útflutningshagvöxt með evru en við með gengisfelldri krónu.\"

Hann segir Ridley einnig fullyrða að íslenskir skattborgarar hafi ekki borið bagga vegna björgunar banka eins og aðildarríki ESB: \"Sannleikurinn er hins vegar sá að Ísland notaði peninga skattborgaranna hlutfallslega næst mest allra þjóða til að halda bönkum á floti. Aðeins Írar gengu lengra í því efni. Með öðrum orðum: Fyrir þessari fullyrðingu er ekki einu sinni sannleikskorn.\"

Enn staðhæfi Ridley í þá veru að það hafi verið lán Íslands að standa utan ESB og því hafi landinu alls staðar verið neitað um lánafyrirgreiðslu og þar af leiðandi séu skuldabaggarnir minni hérlendis: \"Það rétta er að fyrir hrun bankanna fór Seðlabankinn bónleiður til búðar bæði vestan hafs og austan af því að seðlabankar annarra þjóða töldu vonlaust að hjálpa Íslandi án aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þegar til sjóðsins var leitað fékk Ísland lánafyrirgreiðslu frá honum og nokkrum Evrópuríkjum. Fyrirgreiðslan var bundin ströngum skilyrðum um aðgerðir í ríkisfjármálum og peningamálum eins og í Grikklandi.Þrátt fyrir hlutfallslega meiri ríkisskuldir Grikkja er vaxtabyrði ríkissjóðs þeirra léttari en ríkissjóðs Íslands. Evrópusambandsaðildin hefur tryggt þeim betri vaxtakjör.\"

Þegar líður á pistil Þorsteins sést enn betur að grein Matt Ridley í The Times byggist á kolvitlausum upplýsingum um stöðu Íslands, enda lýkur Þorsteinn grein sinni með þessum orðum. \"Það þarf ekki djúpa skoðun til að sjá að öll efnisatriðin sem Matt Ridley notar til að styðja staðhæfingu sína byggja á röngum eða villandi upplýsingum um atburðina hér og stöðu mála. Gestsaugað er einfaldlega ekki gleggra en þær upplýsingar sem það fær að sjá.\"