Árný Fjóla Ásmundsdóttir úr Gagnamagninu greindist jákvæð með COVID-19 í dag.
„Endum þetta ævintýri á einu hressu covid smiti í viðbót! Þessi ólétta og bólusetta kona var greind með covid í dag. Eftir að prófið mitt týndist á flugvellinum í gær brunaði ég í annað í morgun. Ég er samt drulluhress og einkennalaus. Förum varlega og verum góð við hvort annað. Ást og fiður,“ skrifar Árný Fjóla á Instagram síðu sinni.
Fjölmargir hafa ritað stuðningsyfirlýsingar og kveðjur til Árnýjar á Instagram en rúmlega 6000 manns hafa „lækað“ myndina. Þar á meðal er sviðshöfundurinn og Reykjavíkurdóttirin Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir sem skrifar:
„Farðu vel með þig og láttu þér batna.“
Árný er þriðji meðlimur íslenska Eurovisionhópsins til að greinast með COVID-19 en áður greindist meðal annars Jóhann Sigurður Jóhanns¬son sem sagði frá smitinu í einlægu myndbandi á Instagram. Daði Freyr og ósmitaðir meðlimir Gagnamagnsins komu heim frá Rotterdam í gærkvöldi en þeir tveir sem smituðust úti eru enn þar í sóttkví.
Árný og Daði vöktu athygli á lokakvöldi Eurovision þegar þau smelltu kossi á hvort annað þannig nú er bara að krossa fingur og vona að Árný hafi ekki smitað kærasta sinn af veirunni.