Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu, hélt því fram í þættinum Línan er laus á Útvarpi Sögu í morgun að hún hefði verið ein af fimm sem komu til greina til að stýra Ríkisútvarpinu, en það var Stefán Eiríksson sem hreppti starfið.
Fjörutíu og einn umsækjandi lýsti yfir áhuga á að taka verkefnið að sér. Arnþrúður sagði í þættinum Línan er laus, á Útvarpi Sögu að hún hefði verið í lokaúrtakinu. Þá sagði Arnþrúður að þrjár konur og tveir karlmenn hafi komið til greina.
Kjarninn fjallar um málið og vitnar í Arnþrúði sem hafi sagt að tvær aðrar konur hafi einnig komið til greina. Önnur hafi haft reynslu af því að stýra dagblaði og því nánast öruggt að hún hafi átt við Kristínu Þorsteinsdóttur fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins og Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrrverandi þingmann Vinstri grænna. Þá hafi Stefán Eiríksson, sem hreppti stöðuna og Karl Garðarsson fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og framkvæmdastjóri DV einnig komið til greina í stöðuna.
Arnþrúður vildi meina að búið hefði verið að skipa í stöðuna fyrir fram.
„Mér var til dæmis sagt það og fékk alveg þau boð að það væri ekki gott fyrir mig að þekkja engan innan stjórnarinnar. Ég ætti enga vini í stjórninni. Það hvarflaði aldrei að mér að lobbía fyrir mig. Ég talaði aldrei um þetta [opinberlega] og ákvað að láta reyna á fagþekkingu og reynslu.“
Arnþrúður kveðst hafa áttað sig á að maðkur væri í mysunni þegar hún las á vef Kjarnans að Stefán Eiríksson væri á meðal umsækjanda.
„Þá sá ég svona, æ já heyrðu, þetta er bitlingur. Það er slæmt þegar að ríkið heldur þessu áfram að ráða í svona stöður einhverja svona sem þeir vilja halda inni í kerfinu sem embættismenn, þá eiga þeir bara að segja það:
„Leitum eftir embættismanni innan opinbera kerfisins.“
Bætti Arnþrúður við að stjórnin hafi ekki viljað fagþekkingu, heldur eingöngu ráða embættismann til að stýra Ríkisútvarpinu.
„Ég set mörg spurningarmerki við stjórnina [...] Stjórnin vildi embættismanninn. Þannig lítur þetta út hjá mér, því ég uppfylli öll skilyrði.“
Á vef Kjarnans kemur svo fram að heimildir miðilsins herma að aðeins fjórir hafi verið í lokahópnum, þau Stefán, Karl, Kolbrún og Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri í Skútustaðarhreppi og fyrrverandi íþróttafréttamaður en enginn Arnþrúður Karlsdóttir.
Hér má hlusta á Arnþrúði ræða um ráðningarferlið.