Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri á Sögu gefur lítið fyrir samantekt Ríkisútvarpsins um stöðu fjölmiðla og sakar stofunina um einelti.
Einn fréttamanna Rúv deildi samantektinni á þræðinum Fjölmiðlanördar á facebook í vikunni. Þar segir frá taprekstri fjölmiðla en ekkert er minnst á rekstur Útvarps Sögu í samatekt Rúv.
Ekki verður annað greint en að Arnþrúður sé sár og beisk þegar hún getur þess í athugasemd við færsluna á Fjölmiðlanördum að Útvarp Saga sé eini ljósvakamiðillinn sem ekki hafi verið með í upptalningu Rúv þrátt fyrir að skila hagnaði á síðasta ári.
Svo skrifar útvarpsstjórinn Arnþrúður:
„Svolítið magnað þar sem í fréttinni á undan var verið að tala um hversu lítill hlutur kvenna væri í fjölmiðlum en einmitt eini eigandi Sögu er kona. Það er bara ekki sama hver á hlut að máli og m.a.s. lætur RUV eftir sér svona hlutdrægni. Þetta er orðið skammarlegt einellti sem ég er í hjá þessu fólki.“