Arnór ósáttur: segir bjarna ben ljúga - „telur fjármálaráðherra að eldri borgarar kunni ekki að reikna?“

Arnór Ragnarsson segir í Morgunblaðinu í dag að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi logið þegar hann kynnti fjármálafrumvarpið fyrir árið 2020 í síðustu viku. Arnór titlar sig talnaglöggan eldri borgara og segir að skattalækkanir sem boðaðar hafi verið standist ekki skoðun. Grein Arnórs ber heitið: „Telur fjármálaráðherra að eldri borgarar kunni ekki að reikna?“ Arnór segir:

„Við kynninguna segir hann svo ósatt meðvitað eða ómeðvitað og skal ég færa rök fyrir því. Eldri borgari sem er með 300 þúsund kr. tekjur í dag fær útborgað kr. 246.627 krónur þ.e. 36,94% skatturinn er 110.820 krónur og persónuafslátturinn 56.447 krónur.

Á næsta ári lítur dæmið svona út: Skatturinn af 300 þúsundunum er 35,04% eða 105.120 krónur og persónuafslátturinn 51.265 krónur. Eftir standa 246.145 krónur, eða 482 krónum minna en á þessu ári. Telur ráðherrann boðlegt að bjóða okkur eldri borgurum upp á þessar falsfréttir og skilur hann nú af hverju fylgið hrynur af Sjálfstæðisflokknum?“