Aðeins munaði einu atkvæði á Árna Páli Árnasyni formanni Samfylkingarinnar og mótframbjóðanda hans Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur í formannskjöri flokksins í kvöld. Endurtelja þurfti margsinnis til að fá úr því skorið að Árni Páll hefði haft betur með þessum minnsta mun sem um getur í formannskjöri á landsfundi nokkurs stjórnmálaflokks í sögu landsins.
Árni Páll hlaut 241 atkvæði eða 49,49% atkvæða en Sigríður Ingibjörg 240 atkvæði eða 49,28% atkvæða.
„Ég neita því ekki að þetta er ekki óskaniðurstaða,“ sagði Árni Páll í samtali við mbl.is fyrr í kvöld um niðurstöðu formannskjörsins: „Þetta er í fyrsta sinn sem við greiðum atkvæði á landsfundi með þessum hætti þar sem allir eru í kjöri. Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af því sérkenni Samfylkingarinnar að kjósa formann í beinni kosningu. Ég hef talið það flokknum mjög til styrkleika og tekið eftir því að aðrir forystumenn í íslenskum stjórnmálum hafa öfundað mig af því skýra umboði sem ég fékk í allsherjaratkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum síðan. En þetta eru leikreglurnar og við erum að vinna eftir þeim. Ég kvarta ekki yfir leikreglunum og hef aldrei gert,“ segir hann.
Spurður um það hvort niðurstaðan sé ekki áfall fyrir hann segir Árni Páll: „Þessi niðurstaða leggur mér mjög ríkar skyldur á herðar og ég þarf að vanda mig mjög vel í framhaldinu."