Árni Steinar Jóhannsson, fyrrverandi alþingismaður, lést síðastliðið sunnudagskvöld á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík. Banamein hans var krabbamein. Morgunblaðið í dag greinir frá þessu.
Árni Steinar var 62 ára gamall en hann fæddist 12. júní árið 1953. Hann var fæddur og uppalinn á Dalvík, sonur hjónanna Jóhanns Helgasonar sjómanns, sem fórst í sjóslysi árið 1963, og Valrósar Árnadóttur verslunarkonu sem lifir í hárri elli á Dalvík að því er fram kemur í Morgunblaðinu.
Árni Steinar var menntaður garðyrkjumaður og sótti framhaldsmenntun í Landbúnaðarskólanum í Kaupmannahöfn þar sem hann lauk námi árið 1979. Hann var garðyrkjustjóri á Akureyri frá 1979 til 1986 og umhverfisstjóri bæjarins frá 1986 til 1999.
Hann var kjörinn alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð árin 1999-2003. Áður var hann í framboði fyrir Þjóðarflokkinn árin 1987 og 1991 og fyrir Alþýðubandalagið árið 1995.
Eftir að þingmennsku Árna Steinars lauk varð hann umhverfisstjóri Fjarðabyggðar allt til dánardægurs. Á árunum 2008-2014 var hann í stjórn Rarik og var auk þess stjórnarformaður frá 2009 til 2014.
Árni Steinar var ógiftur og barnlaus.