\"Nú er enn rætt um bankasölu,\" skrifar Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar - og segir að þótt vitað sé að hvorki nokkur Íslendingur hafi burði til kaupanna né nokkrir útlendingar hafi áhuga á þeim sé staðreyndin engu að síður þessi; nú séu allt í einu ÞRÍR bankar til sölu.
\"Hverjir munu kaupa,\" spyr formaðurinn í þessum skrifum sínum sem hann birtir í Fréttablaðinu í gær: \"Svarið liggur í augum uppi,\" svarar hann og segir hættuna vera þá að einhverjir \"Borgunarmenn verði fundnir,\" en þeir verði sannarlega ekki borgunarmenn fyrir banka í hefðbundnum skilningi þess orðs, en verði þess heldur \"Borgunarmenn í þeim séríslenska skilningi sem hér hefur verið rakinn,\" skrifar Árni Páll og vitnar þar til þeirra orða sinna um brogað siðferði \"í efstu lögum fjármálakerfisins\" sem kveiki enn og aftur á viðvörunarljósunum í íslensku viðskiptalífi þar sem vel tengdir fjárfestar, \"handvaldir af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki\" fái betur en aðrir gefið á garðann.
Og spá Árna Páls er þessi: \"Þeir munu kaupa bankana á háu verði og nýta sér síðan fákeppnisumhverfi hinnar íslensku krónu til að sjúga kaupverðið úr landsmönnum um ókomin ár.\"