Árni Páll Árnason fráfarandi formaður Samfylkingarinnar setti landsfund flokksins nú rétt áðan. Hann sagði áðan í setningarræðu sinni að flokksmönnum ætti aldri að detta í hug að krefjast þess að formaðurinn einsamall auki fylgi og styrk flokksins. Hann sagði líka að orðræðan í flokknum einkenndist of um af orðræðu “lítils klíkuflokks”. “Við eigum að fagna fjölsbreytileikanum. Flokkar eiga ekki að hætta að hugsa stórt þótt þeir missi fylgi. Við erum í snúinni stöðu”, sagði Árni en krafa nútímans væri að flokkar tali skýrt. Árni sagði að Samfylkingin eigi að fagna fjölbreytileikanum.
“Það er offramboð af vindhönum á vettvagni stjórnmálanna”, sagði Árni og hann sagði að Samfylkingin ætti ekki að snúast eftir veðri og vindum heldur halda sínu striki og bíða af sér mótvindinn. “Höfum gengist við mistökum okkar en of mikið barið á okkur með hnutasvipu. Um allan heim eru stjörnmálaöfgarnar að fitna þá eru félaglegir flokkar í sögulegri kreppu\", sagði Árni og systurflokkar víða um heim eigi í sömu erfiðleikum. Samfylkingin mælist með rúm 10 prósent fylgi í nýlegum könnunum og hefur sjaldan verið svo veik.
Auka landsfundur hófst á Grand hotel í Reykjavík kl.17 í dag en rúmt ár er síðan síðast fundur var haldinn.