Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar segir í bréfi sem hann hefur sent samflokksmönnum sínum í tilefni af boðuðum landsfundi flokksins í byrjun júní, þar sem kjósa á nýja forystu, að flokkurinn hafi gert fjölmörg mistök á síðasta kjörtímabili sem hann verði að læra af.
Bréfið hefur vakið mikl athygli - og sagt af mörgum pólitískt klókt af Árna Páli, en hrifningin innan þingflokksins er misjöfn, svo sem sést á orðum Oddnýjar G. Harðardóttur, fyrrverandi fjármálaráðherra flokksins í tíð síðustu ríkisstjórnar sem segir inntak þess koma á óvart án þess að hún vilji tjá sig frekar um hugrenningar formannsins.
Árni Páll segir í bréfinu að meðal mistaka flokksins á síðasta kjörtímabili hafi verið óskoraður stuðningur hans við Icesave-samningana, en þar hafi flokkurinn ekki varið hagsmuni þjóðarinnar og þá hafi verið fráleitt að sækja um aðild að Evrópusam,bandinu án umboðs þjóðarinnar. Hann nefnir líka stjórnarskrármálið sem hefði átt að áfangaskipta fremur en að ráðast á garðinn allan þar sem hann var hæstur.
Árni Páll segir að flokkurinn verði að læra af mistökum sínum þegar hann tekst á við innra starf sitt og stefnu í aðdraganda landsfundar og kosninga á næsta ári: \"Er Samfylkingin tilbúin að rúma ólíkar skoðanir en sameinast um meginlínur félagslegs réttlætis og jafnra tækifæra, eða er gerð krafa um eina skoðun og eina leið í öllum málum,\" spyr Árni Páll í bréfinu: \"Fyrri leiðin er leið fjöldahreyfingar jafnaðarmanna. Seinni leiðin er leið hefðbundins vinstri flokks. Við verðum að velja þar á milli,\" segir formaðurinn í bréfi sínu.