Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar kveðst ekki hafa skýrt umboð flokksmann til að gegna formennskuhlutverkinu. Hann vill ekki upplýsa hvort hann ætli að gefa sig fram að nýju sem formaður flokksins.
Þetta kom fram í viðtali við Árna í Morgunútvarpinu á Rás 2 í dag, en þar hafði hann jafnframt á orði að það væri skemmtilegra ef flokksmenn gætu beint kröftum sínum gegn andstæðingum sínum frekar en í innanflokksdeilur.
Í þættinum var Árni Páll útrekað spurður að því hvort hann hygðist sækjast eftir endurnýjuðu umboði sem formaður Samfylkingarinnar, en Árni fékkst ekki til að svara því, kvaðst ætla að það kæmi í ljós fljótlega.
Árni bar saman gengi Samfylkingarinnar og annarra flokka, sagði ekki einsdæmi að flokkum jafnt í stjórn og stjórnarandsgtöðu gengi illa um þessar mundir, en athyglisvert væri nú um stundir að á meðan flokksmenn einblíndu á ósigur Samfylkingarinnar í formi fylkistaps þá dytti ekki nokkrum þingmanni Framsóknarflokksins í hug að tala um að flokkurinn hefði tapað 55% fylgi frá kosningu. Það væri eins og Samfylkingin ein væri í niðursveiflu, en því færi fjarri eins og fylgiskannanir sýndu ítrekað.