\"Ég tel ekki rétt að banna þessi lán. Ég tel rétt að fólk fái aukið valfrelsi og að við reynum að þróa lánamarkaðinn þannig að hlutfall óverðtryggðra lána hækki,“ sagði Árni Páll í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í dag, en flutningsmennirnir sem hér um ræðir eru Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Helgi Hjörvar sem lögðu í gær fram frumvarp á Alþingi um afnám verðtryggingar neytendalána. Í greinargerð með frumvarpinu segja flutningsmenn að markmið frumvarpsins sé að leggja bann við verðtryggingu neytendalána, ekki síst eigi það við lán til kaupa á húsnæði.
Árni Páll var afgerandi í Morgunútvarpinu: \"Það er eðlilegt í lýðræðissamfélagi þar sem við búum við gríðarlega veikburða gjaldmiðil, að fólk hafi rétt til þess að verja sig gegn sveiflum í gjaldmiðlinum. Ef menn vilja verja sig gegn sveiflukenndum húsnæðisafborgunum þá er verðtryggingin líklega skásta leiðin til þess í dag en hún er vissulega mjög dýr.“
Sjálfur sagðist Árni Páll í þættinum vera með verðtryggt húsnæðislán og að hann treysti sér ekki til að breyta því í óverðtryggt af ótta við sveiflur.
Árni Páll sagði stefnu Samfylkingarinnar skýra. Flokkurinn vilji afnema verðtryggingu en með því að taka upp annan gjaldmiðil: \"Sterkan gjaldmiðil sem hægt er að hafa viðskipti með utan landsteinanna og þar með losna við verðtryggingu sem megin reglu á íslenskum lánamarkaði,“ sagði hann á RÚV í morgun.