Árni páll leiðir í suðvestur kjördæmi

Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Suðvesturkjördæmi eftir prófkjör þar sem úrslitin voru kunn í kvöld. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði varð í öðru sæti og Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar, varð þriðja sæti í prófkjörinu. Relgur um kynjahlutföll á listanum og hlutföll um ungt fólk verður til þess að Margrét lendir í fimmta sæti.  

 Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur, sem lenti í fjórða sæti fer í þriðja sætið og fer upp um eitt sæti, þar sem hún er yngri en 35 ára. Reglur flokksins um dreifingu kynja og aldurs hafa þannig áhrif á niðurstöðuna.