Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar hyggst ekki að segja af sér formennsku í flokknum þrátt fyrir að fylgi hans mælist nú það lægsta síðan árið 1998, árið áður en flokkurinn bauð fyrst fram.
Hann var gestur á Morgunvaktinni á Rás 2 í morgun og sagði þar almenna kreppu vera í ganga hjá gömlum stjórnmálaflokkum og því sé Samfylkingin ekki í sérstakri stöðu hvað það varðar. Hann vill leggja sitt að mörkum til þess að breyta Samfylkingunni og gera hana færa til þess að takast á við þessar nýju aðstæður.
Árni Páll boðar fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur og aukið vald til þjóðarinnar í mikilvægum málum. „Þegar ríkisstjórnin sveik annan ganginn sveik loforðið um þjóðaratkvæðagreiðslu að þá hafi fólk fyllst reiði og vonleysi og sú reiði bitnar á okkur líka. Á síðasta kjörtímabili vorum við ekkert á því að gefa þjóðinni tækifæri til að tjá sig um Icesave. Það voru mistök, alvarleg mistök og ég held einfaldlega að þjóðin sé komin að þeirri niðurstöðu, og ég deili þeirri skoðun með þjóðinni, að það sé í lagi að fela henni flókin málefni til úrlausnar, jafnvel viðkvæma milliríkjasamninga eins og í tilfelli Icesave.“