Árni og ásgeir yfir ermarsund

Sundkapparnir Ásgeir Elíasson og Árni Þór Árnason afrekuðu það í gær að synda yfir Ermarsundið, frá Englandi til Frakklands. Ásgeir ætlaði sér að synda báðar leiðir, en bræla og stríðir straumar hömluðu för hans.
 
Félagarnir eru fjórðu og fimmtu Íslendingarnir sem komist hafa þessa leið, en skemmst er að minnast þess þegar Sigrún Þuríður Geirs­dótt­ir afrekaði að komast yfir sundið í síðasta mánuði, fyrst íslenskra kvenna. 
 

Ásgeir lagði af stað um miðnætti í fyrrakvöld og var kominn að strönd Frakklands upp úr klukkan fimm í gærdag. Árni Þór lagði af stað um hálf tólf í fyrrarkvöld og lauk sundi sínu um hálf níu leytið í gærkvöld við mjög erfiðar aðstæður þar sem ölduhæð var orðin einn og hálfur metri.

Fyrsti Ísoendingurinn sem komst yfir Ermarsundið var Benedikt Hjartarsson sem synti yfir það árið 2008 - og tók sundið hann 16 klukkustundir.

Ermarsundssund þykir mikil þrekraun, enda eru 60 kílómtrar á milli stranda Englands og Frakklands og Frakklandsmegin eru miklir straumar sem erfitt er að reikna út. Flestir sem gefast upp á sundinu verða það sjóveikir að þeir missa þrótt og skýra hugsun til að takast á við verkefnið.