Árni oddur og marel fá viðskiptaverðlaunin

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, hlaut í dag við viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins og Frjálsar verslunar. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra afhenti Árna Oddi, verðlaunin í Hörpu.

Á 35 árum hefur Marel breyst úr litlu íslensku sprotafyrirtæki, sem sinnti innlendum sjávarútvegi, í hátæknifyrirtæki, sem er leiðandi á alþjóðavísu í þjónustu við ört stækkandi kjúklinga-, kjöt- og fiskiðnað. Frá árinu 2005 hefur veltan aukist úr 130 milljónum evra í 1,2 milljarða. Í dag eru starfsmennirnir orðnir um sex þúsund talsins og fyrirtækið er með starfsstöðvar í yfir 30 löndum í öllum heimsálfum. Á árinu 2018 jukust tekjurnar á fyrstu níu mánuðum ársins um tæplega 17% samanborið við sama tímabil 2017. Hagnaðurinn jókst um ríflega 34% á milli ára.

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/arni-oddur-og-marel-fa-vidskipaverdlaunin/151697/