Launahæsti forstjórinn í Kauphöllinni er Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, sem fékk greitt sem samsvarar 9,7 milljónum króna á mánuði á síðasta ári. Laun Árna Odds hækkuðu um 17% í evrum, sem eru uppgjörsmynt Marel. Í ársreikningi Marel kemur fram að regluleg laun ásamt hlunnindum hafi hækkað úr 581 þúsund evrum í 634 þúsund evrur milli áranna 2017 og 2018.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/arni-oddur-launahaesti-forstjorinn/153447/