Árni líka rekinn af bátnum: „aðeins guð getur dæmt mig og ef hann getur það ekki þá dæmi ég mig sjálfur“

Þriðji skipverjinn á Bíldsey SH-65, Árni Valgarð Stefánsson, hefur einnig verið rekinn. Í gær greindi Hringbraut frá því að Gunnari Þór Óðinssyni og Halldóri Gústaf Guðmundssyni hafi verið sagt upp störfum eftir að Gunnar skar sporðinn af hákarli og sleppti aftur í sjóinn, sem Halldór Gústaf myndaði og birti á Facebook.

DV greinir frá því að Árna, sem er yfirleitt kallaður Árni Biddu, hafi einnig verið sagt upp störfum. Árni er sá eini í myndbandinu sem sést ekki í mynd en heyrist í honum um stundarsakir. Þá greinir Fréttablaðið frá því að alls hafi fjórir skipverjar verið um borð og að öllum nema skipstjóra bátsins hafi verið sagt upp störfum, en hann var í koju þegar atvikið átti sér stað. Áður hafði verið greint frá því að Gunnar væri skipstjóri bátsins, en það er ekki rétt.

\"\"

Gunnar og Árni

DV greinir frá því að einkunnarorð Árna sé að finna á Facebook síðu hans og eru þau nokkuð viðeigandi í ljósi framangreinds: „Aðeins Guð getur dæmt mig og ef hann getur það ekki þá dæmi ég mig sjálfur.“

Myndbandið umtalaða má sjá hér: