Breki Johnsen var borinn til grafar 7.apríl á laugardag og margar minningargreinar um hann hafa birst um helgina. Breki lést hinn 28.mars síðastliðinn, aðeins fertugur að aldri. Faðir Breka, Árni Johnsen fyrrum alþingismaður skrifar minningarorð um son sinn og lýsir Breka sem sínum besta vini en dregur ekki undan baráttu Breka við áfengissýki sem hafi að lokum haft son hans undir. Breki lenti í slysi sem dró hann til dauða en alkóhólisma barðist hann lengi við. Árni segir sin sinn ekki hafa viljað þiggja þá hjálp við fíkninni sem honum bauðst.
Árni skrifar að Breki hafi verið hvers manns hugljúfi, óvinalaus og hæfileikaríkur, trygglyndur og vinamargur. Það er sárara en orðum taki að tapa syni sínum og besta vini í svona orrustu. Ungur maður í blóma lífsins með allt til brunns að bera fyrir skemmtilegt líf og árangursríkt. „Það er sárara en orðum taki að tapa syni sínum og besta vini í svona orrustu. Ungur maður í blóma lífsins með allt til brunns að bera fyrir skemmtilegt líf og árangursríkt. Fíknin er djöfullega sterk,“ skrifar Árni og að Breki hafi eflaust bara átt einni óvin sem er Bakkus.
Breki var m.a. með atvinnupróf í flugi í Bandaríkjunum og hafði flugstjórnarréttindi á stærstu þotur í heimi, en gat ekki unnið við flugstjórn nema tímabundið vegna þrálátrar bakveiki, segir í minningargrein.
Breki var faðir 15 ára drengs. Hann var sonur Árna og eiginkonu hans Halldóru Filippusdóttur. Stutt er síðan að Halldóra missti eldri son sinn Hauk Arrebo Clausen sem var sjúpsonur Árna. Haukur Arrebo varð bráðkvaddur 30. nóvember síðastliðinn á 59. aldursári.