Árni johnsen fær skúffufé ráðherra

Árni Johnsen, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur fengið styrk frá tveimur ráðherrum Framsóknarflokksins vegna kvikmyndaverkefnis sem hann vinnur að á Grænlandi um Scoresbysund.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun, en þar er einnig rifjað upp nýlegt dæmi þess að Skotta ehf., fyrirtæki í eigu Árna Gunnarssonar, fyrrverandi varaþingmanns Framsóknarflokksins hafi í þrígang fengið styrk frá sömu ráðherrum vegna þriggja mismunandi verkefna.

Í fréttinni segir að ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hafi veitt Árna Johnsen og Skottu ehf. þessa styrki. Aðrir ráðherrar hafi ekki veitt styrki til verkefnanna.

Árni Johnsen segir við blaðið að þetta verkefni sé mjög kostnaðarsamt. Hann vildi ekki gefa upp hverjir væru með honum í þessu verkefninu og vissi ekki hversu kostnaðarsamt verkefnið væri: \"Scoresbysund er lengsti fjörður í heimi með um þúsund fjöllum og tugum skriðjökla. Náttúran er stórbrotin,“ segir Árni. 

Árni sagði tengingu verkefnisins við Ísland ekki vera aðra en að fjörðurinn sé nálægt Íslandi. 

Svo sem fyrr segir hefur Skotta ehf., félag í eigu fyrrverandi varaþingmanns Framsóknar fengið þrjá styrki af skúffufé ráðherranna, meðal annars fyrir sjónvarpsþætti um mannlífsflóru íslenskra fiskiskipa og myndatöku á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Berlín.