Árni hætti við að mæta á fundinn þegar hann frétti hver yrði fundarstjóri

Árni Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Gildis – líf­eyr­is­sjóðs, hætti við að mæta á fund með trúnaðarmönnum og stjórn Eflingar eftir að hann komst að því hver yrði fundarstjóri fundarins. Tilefni fundarins var að ræða Init-málið, sem Kveikur ljóstraði upp um fyrr á þessu ári. Kom þá í ljós að hundruð milljóna króna hafði streymt út úr félaginu Init sem sá um rekstur á tölvukerfi fyrir lífeyrissjóðina.

Fram kom í umfjöllun Kveiks að Gildi hafi greitt Init 620 milljónir króna fyrir þjónustuna á fjórum árum. Enginn hjá Gildi vildi ræða málið en sendu yfirlýsingu um að lífeyrissjóðurinn hafi í áraraðir reynt að minnka umsvifin.

Árni var búinn að samþykkja að mæta en hætti snarlega við þegar hann frétti að fundarstjórinn væri Aðalsteinn Kjartansson, sem var einn blaðamanna Kveiks sem fletti ofan af Init.

Árni sendi Kjarnanum skrifleg svör:

„Nálgun for­svars­manna Efl­ingar á við­fangs­efn­inu og fyr­ir­komu­lag fund­ar­ins var með þeim hætti að það var að mínu mati ekki ásætt­an­leg­t,“ skrifar Árni.

Var hann spurður hvort ákvörðunin hafði eitthvað með Aðalstein að gera:

„Eins og fram kom í fyrra svari mínu þá var það nálgun Efl­ing­ar­for­yst­unnar á efn­inu og heild­ar­um­gjörð fund­ar­ins sem var ástæða þess að ég hafn­aði því að mæta. Taldi síðan að það væri eðli­legra að fjalla um málið á sjóð­fé­laga­fundi þar sem allir sjóð­fé­lagar Gildis fengju upp­lýs­ingar um málið og gætu spurt.“