Árni Gils Hjaltason látinn tæplega þrítugur að aldri

Árni Gils Hjaltason er látinn tæplega þrítugur að aldri. Hann fæddist 3. október árið 1992.

DV greindi fyrst frá.

Árni Gils hefði orðið þrítugur á árinu en hann hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna dómsmáls.

Hann var sýknaður í Landsrétti í fyrra af ákæru um tilraun til manndráps en þá hafði hann verið sakfelldur í héraðsdómi.

Árni Gils hafði þó setið í fangelsi í 277 daga. Hann er sonur Hjalta Árnasonar, fyrrverandi kraftlyftinga- og aflraunamanns, sem árum saman barðist fyrir réttlæti sonar síns.

Samkvæmt heimildum DV bar lát Árna að undir helgi en nákvæm tímasetning er enn ekki ljós.