Einstæður faðir missti allt sitt í bruna í Jórufelli fyrir rúmri viku. Íbúðin varð alelda. Þar bjó Árni Gunnlaugsson með þrjá syni sína og voru tveir drengjanna heima þegar eldurinn kom upp.
Á Vísi er rætt við Árna sem segir að hann hafi fengið símtal frá elsta drengnum um að eldur væri laus í íbúðinni. Feðgarnir gistu á farfuglaheimili fyrstu næturnar eftir brunann. Árni segir:
„Það er allt farið. Allt. Eins og segir í gömlu auglýsingunni „þú tryggir ekki eftir á.“ Það er allt ótryggt, engin heimilistrygging, þannig að það er allt farið. Við verðum bara að byrja upp á nýtt.“
Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir Árna enda erfitt að byrja uppá nýtt með tvær hendur tómar. Systir hans segir við Vísi:
„Staðan hans er eins slæm og hægt er. Hann er einn með þrjá stráka og missti allt í brunanum. Þetta eru unglingsstrákar sem þurfa mikinn stuðning og ofboðslega mikilvægt að þeir fái öryggi sitt aftur.“
Þau sem geta styrkt einstæða föðurinn og drengina þrjá er bent á styrktarreikning sem skráður er á yngsta son fjölskyldunnar.
Reikningsnúmerið er: 0331-22-003842 / kennitala: 090206-3380
Einnig er hægt að hafa samband við Árna í gegnum tölvupóst ([email protected]) ef fólk vill styðja feðgana með húsgögnum, fatnaði, tölvum eða öðrum hlutum sem gagnast í daglegu lífi.