Árni biður björgólf thor afsökunar

Árni M. Mathiesen fyrrverandi fjármálaráðherra lýsir því yfir í nýrri færslu á vefnum btb.is að hann hafi ekki haft ástæðu til að ætla að Björgólfur Thor hafi sagt ósatt í aðdraganda bankahrunsins.


Tilefni skrifa Árna eru þau að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið var haft eftir honum að fulltrúar bankanna hefðu sagt stjórnvöldum ósatt. Orðrétt var haft eftir Árna: „Og verstur var Björgólfur [Thor Björgólfsson] [...] og hann var að ljúga að hinum líka og þeir komu svo bara um kvöldið og sögðu; „Það er ekkert að marka það sem þessi maður segir.“ Þeir voru að reyna að finna leið til að sameina Kaupþing og Landsbankann til þess að þeir gætu staðið þetta og Björgólfur sagði bara: Við reddum þessu og við reddum þessu.“


Árni segir nú, að þróun mála eftir hrun hafi breytt skoðun hans á þessa atburði. Staða Björgólfs Thors hafi verið fjárhagslega sterkari en hann hélt og mat Björgólfs Thors á stöðu Kaupþings betra en annarra. Því hafi ekki verið ástæða fyrir sig að ætla að Björgólfur Thir hafi verið að segja ósatt um möguleika sína til að afla fjár fyrir nýjan, sameinaðan banka.


Nánar er hægt að lesa um nýja afstöðu Árna á btb.is.