Flugslysið: arngrímur komst lífs af

Einn kunnasti flugkappi landsins, Arngrímur Jóhannsson komst lífs af úr flugslysinu á Tröllaskaga í gærdag, en Arngrímur sem er þrautreyndur flugmaður á jafnt stórum þotum sem litlum rellum, flaug vélinni. Einn farþegi var um borð og var hann látinn þegar hjálp barst.

Maðurinn sem lést í slysinu var Kanadamaður, en hann var ásamt Arngrími á leið frá Akureyri til Keflavíkur í gærdag. Áætlað var að vélin lenti syðra klukkan 16:20. Þegar ekkert spurðist til hennar var leit hafin á lofti og láði. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar tóku þátt í leitinni ásamt 200 manna liði björgunarsveitanna á Suður-, Vestur- og Norðurlandi. Vélin fannst á tíunda tímanum í gærkvöld upp af Barkárdal á Tröllaskaga og hafði brotlent þar, en dalurinn liggur inn af Hörgárdal, skammt vestan við Akureyri. Kanadamaðurinn var látinn þegar að var komið, en Arngrímur var fluttur slasaður á Sjúkrahúsið á Akureyri eins fljótt og kostur var og síðar fluttur með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík þar sem hann dvelur nú á gjörgæsludeild.

Leit­in gekk hratt og ör­ugg­lega fyr­ir sig að sögn Jónas­ar Guðmunds­son­ar, verk­efna­stjóra Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar: \"Við skipt­um niður á leit­ar­svæði og það gekk hratt og vel fyr­ir sveit­irn­ar að sækja út á svæðin,“ seg­ir hann í samtali við mbl.is. Hann bæt­ir þar við að björg­un­ar­sveit­ir Lands­bjarg­ar hafi áður tekið þátt í álíka víðfeðmum leit­um und­an­far­in ár og að meðlim­ir björg­un­ar­sveit­anna séu van­ir álag­inu: \"Þetta var fjöl­mennt og stórt viðbragð strax í upp­hafi, enda ástæða til. Lögð var áhersla á svæðið þar sem vél­in fannst að lok­um vegna þess að veðrið var þess eðlis á þeim slóðum. Það var því tal­in ástæða til að leggja ákveðinn þunga á það en jafn­framt var leitað á öðrum svæðum.“

Flug­vél­in er af gerðinni De Havil­l­and Can­ada DHC-2 Bea­ver Mk1 og get­ur verið út­bú­in til að lenda á vatni jafnt sem landi. Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðsins var vél­in lengi í eigu kanadíska hers­ins en vél­arn­ar þykja jafn­an sterk­ar og áreiðan­leg­ar.

Arngrímur Jóhannsson hefur verið á meðal kunnustu flugstjóra landsins um langt árabil. Hann er fæddur á Akureyri 7. apríl árið 1940, og hóf flugferil sinn 14 ára að aldri hjá Svifflugfélagi Akureyrar á Melgerðismelum í Eyjafirði. Fyrsta flugskírteini sitt fékk Arngrímur í svifflugi 1958, ári síðar tók hann einkaflugmannspróf og atvinnuferill hans hófst síðan árið 1966. Arngrímur flaug tvö sumur fyrir Flugfélag Íslands á Douglas DC-3 og eitt ár hjá Norðurflugi á Beechcraft C-45H og Piper PA-23 Apache. Árið 1969 hélt hann til Biafra og flaug þar Douglas DC-6B vélum Flughjálpar með mat og aðrar lífsnauðsynjar til þurfandi í stríðshrjáðu landi. Að því tímabili loknu starfaði hann sem siglingarfræðingur hjá Loftleiðum á Rolls-Royce 400 (CL-44).  Hann stofnaði flugfélagið Atlanta seint á síðustu öld og gerði það að stórveldi í fluginu á sínum tíma. Hann hefur á seinni árum búið í heimabæ sínum Akureyri og haft þar forgöngu um uppbyggingu Flugsafns Íslands á Akureyrarflugvelli, auk þess sem hann hefur lagt stund á listflug.

Vélin sem Arngrímur flaug í hinu örlagaríka flugi í gærdag var lítil sjóflugvél. Hún var hæf til blindsflugs.

Tildrög slyssins eru ókunn, en lágskýjað var þegar vélin fór á loft í gær.

Myndin sem fylgir þessari frétt er af Arngrími, lengst til vinstri, í flugsatjórnarklefa á leið í sjúkraflug á vegum Rauða krossins.