Einn dáðasti flugmaður landsins, Ómar Ragnarsson segir Arngrím Jóhannsson vera einstakan mann og að gærdagurinn hafi verið erfiður fyrir sig þegar hann frétti tíðindin þessa mikla vinar síns sem standi hjarta sínu nær en flestir aðrir menn.
Ómar skrifar um atvikið á bloggi sínu: \"Dagurinn í gær var mörgum vinum Arngríms Jóhannssonar erfiður. Fljótlega eftir að fréttist hér syðra af hvarfi flugvélar var ljóst um hvaða flugvél var um að ræða og hverjir væru um borð, og einnig að heyrst hefði í henni síðast í Hörgárdal,“ skrifar Ómar en Arngrímur slasaðist illa þegar lítil sjóflugvél hans skall til jarðar ofan Barkárdals inn af Hörgárdal, skammt vestan Akureyrar, en farþeginn um borð, sem var Kanadamaður var látinn þegar hjálp bars.
\"Það var ekki óeðlilegt að flogið væri þar um eins og aðstæður voru í gær, því að Öxnadalsheiði var ófær fyrir sjónflug. Þegar þannig stendur á geta Hörgárdalsheiði eða leiðin um Barkárdal og yfir Barkárdalsjökul stundum verið færar og hin síðarnefnda leiðin er stysta leiðin yfir í Skagafjörð, leið sem ég hef flogið býsna oft,“ skrifar Ómar og talar hlýlega um þennan vin sinn: \"Arngrímur stendur hjarta mínu nær en flestir aðrir menn og veit ég vart annan mann slíkan. Hugur minn og margra fleiri er því hjá honum í dag.“