Fréttablaðið greindi frá því í dag að kynhlutlausa persónufornafninu hán verði bætt við orðabækur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þórdís Úlfarsdóttir, ritstjóri veforðabóka, staðfestir þetta og segir málið vera í vinnslu.
Þórdís segir að ákvörðunin um að taka inn nýtt persónufornafn hafi ekki verið auðveld.
„Við vitum að þetta er umdeilt ekki bara hjá stofnuninni heldur víða í samfélaginu. Af því að fornöfn eru svokölluð kerfisorð í málinu og maður leikur sér ekki að því að bæta við kerfisorðum bara einn góðan veðurdag,“ segir hún.
Hán var fyrst sett fram sem kynhlutlaust persónufornafn af kynsegin aktívistanum Öldu Villiljós í grein sem hán birti á veftímaritinu Knúz árið 2013. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, formaður Trans Ísland, fagnar þessari ákvörðun en segir hana löngu tímabæra.
„Það er stór hópur hinsegin fólks sem notar þessi fornörn í sínu daglegu tali og þetta er orðið hluti af tungumálinu og það er náttúrlega ákveðin viðurkenning að svona komist inn í orðabók. Hinsegin fólk hefur oft ekki haft orð eða tungumál til að lýsa sjálfum sér og við höfum lent í því oft á Íslandi að við erum að nota ensk hugtök eða annað. En þess vegna er ótrúlega mikilvægt fyrir þróun tungumálsins að svona verði hluti af orðabókum formlega, bara til þess að staðfesta það og festa í sessi,“ segir Ugla.
„Þannig þetta er bara mjög jákvæð þróun og vonandi mun hún bara halda áfram af því það er ótrúlega dýrmætt að geta haft orð og hugtök til þess að lýsa sjálfum sér á sínu eigin tungumáli.“
Ugla segir ljóst að persónufornafnið hafi fyrir löngu fest sig í sessi í samfélaginu en það hafi þó tekið aðeins lengri tíma fyrir fræðasamfélagið að taka það í sátt.
„Það er löngu tímabært að þetta fái loksins sess. Stofnanir eru oft svolítið á eftir samfélaginu, það er bara svolítið eins og það er, en það er gott að þau eru loksins að komast á sama stað og við. Af því við erum löngu búin að venjast þessu, allavega í hinsegin samfélaginu og víðar. Fólk er byrjað að nota þetta, það er byrjað að tala um þetta í háskólum og kenna þetta sem fornafn í háskólum. Þannig þetta er bara komið til að vera.“
Ugla var spurð að því hvort hún hafi orðið vör við einhverja andstöðu gegn því að taka hán upp formlega hjá fræðasamfélaginu.
„Það hefur verið eitthvað, þá hefur það aðallega verið eitthvað um að persónufornöfn séu lokaður orðflokkur og því sé ekki hægt að bæta við. En það var svolítið bara til að byrja með og maður heyrir mikið minna af því nú til dags. Auðvitað er fólk með alls konar skoðanir á alls konar málefnum þannig það er alveg fólk sem finnst þetta ekkert eiga að koma inn en við hlustum nú ekkert á þær skoðanir, þetta er náttúrlega bara mjög mikilvægt.“
Ugla segist sjálf fagna þessum áfanga en hún er nú stödd á landinu vegna Hinsegin daga fara fram í Reykjavík um þessar mundir.
„Já, mér finnst þetta bara mjög tímabært skref og frábært að þetta sé loksins að gerast,“ segir hún að lokum.