Arnar: „sýndi óafsakanlegt dómgreindarleysi og ósæmilega hegðun“

„Ég harma að Valur hafi dregist inn í umræðu um dóm sem ég hlaut í síðustu viku vegna líkamsárásar sem átti sér stað fyrir meira en tveimur árum síðan. Allan minn íþróttaferil hef ég lagt hart að mér fyrir Val, þar sem hjartað mitt hefur slegið undanfarin tuttugu ár.“

Þetta segir Sveinn Aron Sveinsson í yfirlýsingu sem hann sendi í kjölfar fregna um að Valur hefði rift samningi við hann vegna líkamsárásar. Sveinn Aron var dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sjö skilorðsbundna vegna árásar sem átti sér stað á bíla­stæði við Sæ­mund­ar­götu í Reykja­vík í sept­em­ber fyr­ir tveim­ur árum. Í yfirlýsingu Vals sagði:

„Sú of­beld­is­hegðun sem leikmaður­inn játaði að hafa sýnt er í al­gjörri and­stöðu við allt sem Val­ur stend­ur fyr­ir og hafa því all­ar for­send­ur fyr­ir sam­starfi fé­lags­ins og leik­manns­ins brostið.

Fé­lag­inu er því nauðugur einn sá kost­ur að rifta samn­ingn­um. Með birt­ingu frétt­ar um málið í fjöl­miðlum fengu stjórn­ar­menn Vals fyrst vitn­eskju um þann verknað sem leiddi til hans.“

Sveinn Aron hefur eins og áður segir sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins:

„Á þeim tíma hef ég gengið í gegnum hæðir og lægðir með félaginu og óska þess heitast að þótt samstarfi mínu við félagið sé nú lokið verði sigranna minnst sem við náðum í yngri flokkum sem og í meistaraflokki þar sem Íslandsmeistaratitillinn 2017 stendur hæst.

Eftir að hafa hampað titlinum ákvað ég að leggja skóna á hilluna og var því ekki leikmaður Vals þegar ég sýndi óafsakanlegt dómgreindarleysi og ósæmilega hegðun, sem ég viðurkenndi skýlaust fyrir dómi og tek núna út refsingu fyrir.

Sú byrði mín á ekki að skyggja á íþróttafélagið mitt og stuðningsmenn þess.“