Arnar Gauti segist ekki byrjaður með Birgittu Líf: „Birgitta er geggjuð“

Hafnfirðingurinn og áhrifavaldurinn Arnar Gauti Arnarsson, best þekktur sem Lil Curly, segir að hann og Birgitta Líf Björnsdóttir, eigandi Bankastræti Club, séu ekki kærustupar. Hávær orðrómur hefur verið um það í samfélaginu síðustu vikur að þau séu saman og hafi jafnvel íhugað að opinbera sambandið.

Lil Curly ræddi þetta í nýjasta þætti hlaðvarpsins BLÖkastið. Hann segist vera á lausu. Hann vildi þó ekki ræða hvort þau væru að hittast. „Birgitta er geggjuð, hún er meistari,“ sagði hann um vinkonu sína.

Arnar Gauti var í viðtali við Fréttablaðið nýverið þar sem hann útskýrði viðurnefnið. „Krullurnar í hári mínu koma frá mömmu minni sætu, Ólöfu Baldursdóttur, en Lil Curly-nafnið ákvað ég að nota upp á djókið þegar ég stofnaði TikTok-aðgang. Verst var að notendanafnið lilcurly var frátekið á einhverjum óvirkum aðgangi, svo ég heiti lilcurlyhaha á TikTok,“ sagði Arnar Gauti, sem er með yfir 100 þúsund fylgjendur í Bandaríkjunum.