„Ef við viljum búa í réttarríki. Ef okkur finnst það raunverulega slæm tilhugsun að saklaus maður verið dæmdur til refsingar, til mannorðsmissis, til frelsissviptingar. Þá er það hræðileg hugmynd að trúa alltaf þolendum,“ sagði Arnar Þór Jónsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi þingkosningar, í þættinum Harmageddon í gær.
„Í lögfræðinni þá hefur það verið viðtekið, hér á Vesturlöndum, í nokkur þúsund ár að við alltaf að túlka vafaatriði sökunaut í vil. Allur vafi á alltaf að falla þeim sem sakaður í vil.“
Hann var spurður út í þá bylgju sem gengur nú um samfélagið, í tengslum við #MeToo, að það eigi alltaf að trúa þolendum kynferðisbrota, í ljósi þess að falskar ásakanir um slíkt séu í mjög litlum minnihluta. „Eigum við að líta svo á að það sé ásættanlegur herkostnaður því falskar ásakanir séu svo sjaldgæfar, ágæt kona nefndi að það væri ein af fimmtíu, að við dæmum þá einn af fimmtíu saklausan í fangelsi? Ég held að það sé óásættanlegt. Við viljum búa í réttarríki,“ sagði hann. „Þá getum við ekki farið niður þessa braut.“
Arnar Þór ræddi margt í viðtalinu, meðal annars þá staðreynd að hann sem dómari segi skoðun sína opinberlega.
Arnar Þór sagði að raddir sem þessar hefðu verið uppi á öllum tímum. „Ef við viljum búa í frjálsu samfélagi þá verðum við að vera tilbúin að verja það. Líka fyrir Talibönum nútímans, hvaðan sem þeir koma.“
Aðspurður hvers vegna þessi umræða komi upp aftur og aftur þá sagði hann þetta djúpstætt í mannseðlinu. „Þessi hugmynd að ég hef höndlað sannleikann og ég veit hvað ykkur er fyrir bestu. Ég ætla að koma á fullkomnu samfélagi, útópía, þar sem hreinsað er burtu alla þá sem hugsa rangt. Þetta heitir púrítanismi og hann endar með nornaveiðum. Þess vegna verður almenningur að rísa upp og mótmæla þessu.“