Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Kópavogi hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta. Fréttablaðið segir frá þessu í dag og að málefnasamningur verði kynntur fulltrúaráðum flokkanna í kvöld. Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Kópavogi, verður áfram bæjarstjóri og Birkir Jón Jónsson, sem leiðir lista Framsóknar í bæjarfélaginu, verður formaður bæjarráðs. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut rúm 36 prósent atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í liðnum mánuði og fimm fulltrúa, en Framsóknarflokkurinn hlaut aðeins rúm 8 prósent og Birkir Jón sá eini sem náði kjöri.
Innan Sjálfstæðisflokksins var ekki vilji til að halda áfram samstarfi með Bjartri framtíð þótt að meirihluti þeirra og flokksins hafi haldið. Ármann vildi áframhaldandi samstarf en varð undir með þá afstöðu en meginástæðan fyrir andstöðunni telst vera sú að Björt framtíð bauð fram með Viðreisn í þetta sinn.