Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, hafnar því alfarið að einhver leyndarhyggja sé í gangi varðandi kaupum bæjarins á auglýsingum í Vogum, tímariti Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Sagði hún í pistli nýverið að Sjálfstæðisflokkurinn fái þannig hærri styrki en aðrir flokkar í bænum, þá hafi það verið falið borgarfulltrúum og finnist hvergi í opnu bókhaldi bæjarins.
Sjá einnig: Bæjarfulltrúi fer fram á rannsókn á Kópavogsbæ
„Við reynum að gefa út blað einu sinni á ári,“ sagði Ármann Kr. í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. „Auglýsingarnar sjást í blaðinu þannig að þetta er ekkert leyndarmál.“
Hann segir þetta ekki háar fjárhæðir. „Þetta er bara brotabrot af auglýsingatekjum blaðsins. Við gefum út þetta blað hvort þessar auglýsingar fáist eða ekki.“ Mesta hefðin sé fyrir blaðaútgáfu hjá Sjálfstæðisflokknum.
„Það er ekki leyndarhyggja þó fulltrúi Pírata átti sig ekki á þessu fyrr en núna. Við höldum námskeið í byrjun hvers kjörtímabils.“
Ekki sé um að ræða neina spillingu eða leyndarhyggju, styrkirnir séu í boði fyrir alla.
„Ég fór sjálfur í opna bókhaldið og fann þetta strax. Þetta er ekki meira leyndarmál en það,“ sagði hann.
Með öllu óeðlilegt
Sigurbjörg Erla birti svar við þessu á Facebook nú síðdegis. Hún segir Ármann hafa talað niður til sín. „Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi og bæjarstjóri talaði niður til mín í útvarpsviðtali í morgun eins og það sé nú bara ég sem sé svo mikill kjáni að vita ekki af þessum greiðslum sem flokkar geti fengið til auglýsinga í málgagni sínu,“ segir hún. „Án þess að ávarpa hrokann sem skín í gegn vil ég nefna að hann svarar á sama tíma ekki fyrir þá hluti sem ég nefndi sem eru gagnrýniverðir:
-Þessar reglur eru hvergi skráðar. Það er ógagnsætt og slíkt óskýrt utanumhald opnar fyrir misnotkun og grefur undan öllu eftirliti. Það snýst ekkert um að ég viti nú bara ekki hvernig reglurnar eru. Það er með öllu óeðlilegt.
-Þessar reglur þekkja ekki allir flokkar til og þær voru ekki kynntar samhliða styrkjareglum. Það er með öllu óeðlilegt.
-Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki bara mest allra flokka byggt á þessum óskráðu ,,viðmiðum“ heldur fékk hann líka fé umfram þessi svokölluðu viðmið algjörlega byggt á hentisemi. Það lyktar af spillingu. Það er með öllu óeðlilegt.
-Sveitarfélag sem heldur kosningar og á þar með að vera óháður aðili hefur í gegnum þetta fyrirkomulag – undir stjórn Sjálfstæðisflokksins – auglýst sérstaklega í málgagni Sjálfstæðisflokksins fyrir Alþingiskosningar, sem er til þess að fallið að hvetja kjósendahóp flokksins umfram aðra kjósendur á kjörstað. Það er með öllu óeðlilegt.
Fyrir þetta hefur oddvitinn engu þurft að svara. Það er með öllu óeðlilegt.“
Sigurbjörg segir að svona vinni Sjálfstæðisflokkurinn.
„Þegar spilling þeirra, sem samfélagið okkar er marinerað í, er afhjúpuð er reynt að lítillækka þann sem það gerir. Hvort sem það er með því að tala stanslaust um sokkana hans Björns Levís eða þá staðreynd að þetta sé mitt fyrsta kjörtímabil og ég því ekki jafn reynd og oddvitinn sjálfur í pólitík,“ segir hún. „Kannski er það líka bara gagnlegt að ég sé ekki búin að hreiðra um mig í kerfinu eins og oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur gert í áratugi. Þar með er ég ekki orðin samdauna gjörspilltu kerfi þar sem það þykir eðlilegt að opinberu fé sé veitt án reglna og gagnsæis í flokkssjóði.“