Rithöfundurinn og bókmenntaprófessorinn Ármann Jakobsson birti nokkuð skemmtilega mynd á Twitter í dag með skjáskoti af Barnalesbók Morgunblaðsins árið 1946.
Í Morgunblaðinu fyrir tæpum 76 árum var birtur hluti úr hinni heimsþekktu barnasögu um Línu Langsokk eftir Atrid Lindgren, eða Pippi Långstrump eins og hún heitir á frummálinu. Athygli vekur þó að á þeim tíma var aðalsögupersónan sterkasta stelpa í heimi ekki kölluð Lína heldur Lóa.
Ármann virðist vera nokkuð hvumsa yfir þessu og skrifar einfaldlega undir myndina: „Ég er í losti.“
Eldri lesendur muna kannski eftir því að Lína langsokkur hefur ekki alltaf heitið Lína á íslensku en fyrir hina þá er skýringuna að finna í grein Morgunblaðsins frá 8. september 1995. Þar stendur:
„Nokkrum mánuðum eftir að fyrsta bókin um Línu var birt í Svíþjóð birtist framhaldssaga um Lóu langsokk í Barnalesbók Morgunblaðsins, eða í marsmánuði 1946. Tveimur árum síðar fær hún sitt endanlega nafn þegar bókin um Línu langsokk var gefin út af Félagsprentsmiðjunni á Akureyri árið 1948 í þýðingu Jakobs Ó. Péturssonar.“
Ég er í losti: pic.twitter.com/NajKPezZBe
— Ármann Jakobsson (@ArmannJa) June 12, 2022