Ný veiðigjöld á makríl geta skilað ríkissjóði hálfum öðrum milljarði króna á ári samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar í gær, en gjöldin nema 10 krónum á hvert kíló makríls. Á fundi stjórnarinnar var og samþykkt að hækka almenn veiðigjöld um einn milljarð króna frá því sem verið hefur og munu þau nema árlega, næstu þrjú árin, nálega 11 milljörðum króna að teknu tilliti til afkomu greinarinnar, en við bætast svo makrílgjöldin sem nefnd voru að ofan.
Ljóst er að nýtt fiskveiðfrumvarp sjávarútvegsráðherra mun ekki líta dagsins ljós á yfirstandandi vorþingi vegna andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokksins við inntak þess. Þess í stað gerir ráðherra ofangreindar breytingar á veiðigjöldum sem nú hafa fengið brautargengi innan beggja stjórnarflokkanna.
Útgerðarmenn hafa mótmælt veiðigjaldinu á makríl og segja það of hátt og draga úr arðbærni veiðanna.