Arion banki lítur svo á að í hvívetna hafi verið staðið með eðlilegum og faglegum hætti að framkvæmd á söluferli á eignarhlut í BG12 í Bakkavör Group og hafnar bankinn alfarið vangaveltum um annað.
Sjá einnig: Bankasýslan vildi rannsaka sölu Arion í Bakkavör
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Þar segir að bankinn hafi átt óbeinan hlut í Bakkavor Group Ltd í gegn um eignarhaldsfélagið BG12, en hlutinn eignaðist bankinn í kjölfar skuldaskila. Samkvæmt lögum gat bankinn einungis haldið á hlutnum í takmarkaðan tíma og bar bankanum skylda til að selja eignarhlutinn um leið og tækifæri gæfist
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/arion-viundandi-endurheimtur-a-bakkavoer