Arion lækkaði um 10 milljarða kr. vegna primera air

Það verður sneisafullur pakki í Viðskiptum með Jóni G. í kvöld. Á meðal efnis er gjaldþrot Primera air en það lækkaði markaðsverðið á Arion banka í kauphöllinni í gær um 10 milljarða króna. Það vekur athygli að í afkomuviðvörun Arion banka í gær sagði að vegna ófyrirséðra atburða gerði bankinn ráð fyrir að niðurfæra lán og greiða út ábyrgðir og að áhrifin yrðu um 1,3 til 1,8 milljarðar króna. En markaðurinn svaraði strax fyrir sig í gær með 10 milljarða lækkun á virði bankans í kauphöllinni.