Ekki liðu átta vikur frá því að Arion banki eignaðist Hótel Ísland í skuldaskilum undir lok árs 2013 að bankinn hafði selt hótelið nýjum eigendum með rúmlega hálfs milljarðs hagnaði.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en þar segir að viðskipti þessi hafi vakið furðu forsvarsmanna Hótels Sögu, sem látið höfðu eignina af hendi í fyrrnefndum skuldaskilum, en í kjölfar alvarlegra athugasemda af þeirra hálfu hafi fyrri samningur verið tekinn upp: \"Meðan ég var enn formaður Bændasamtakanna náðu forsvarsmenn Hótels Sögu og Arion banka ekki saman um sölu á félaginu sem átti Hótel Ísland þar sem verðhugmyndir bankans voru of lágar,“ segir Haraldur Benediktsson, alþingismaður og fyrrverandi formaður Bændasamtakanna í blaðinu í morgun.
\"Hótel Saga lenti eins og mörg önnur fyrirtæki í vandræðum með skuldir sínar í hruninu,\" segir Haraldur \"og við leituðum í samstarfi við bankann að lausn á þeim vanda. Bankinn vildi fá eignina á verði sem var alltof lágt. Þegar ég hvarf til annarra starfa var hótelið selt á svipuðu verði en örfáum dögum síðar var það selt þriðja aðila á verði sem var meira en hálfum milljarði hærra,“ bætir Haraldur við.
Upplýsingafulltrúi Arion banka hefur staðfest í samtali við Morgunblaðið að þegar það spurðist út að bankinn hefði selt sömu eign í desember sama ár, eða innan við átta vikum frá því að samkomulagið var undirritað, með hálfs milljarðs hagnaði, hefðu forsvarsmenn Hótels Sögu sett sig í samband við bankann og beitt sér fyrir því að fyrra samkomulag yrði tekið upp. Niðurstaðan varð sú að Arion banki bætti seljanda að nokkru upp mismuninn á söluandvirði fyrri viðskiptanna og þeirra sem áttu sér stað tæpum tveimur mánuðum síðar, eins og segir í frétt blaðsins í dag.