Árið 2018 verður gert upp í tveggja klukkustunda löngum þætti frá 12 til 14 á gamlársdag. Linda Blöndal og Sigmundur Ernir fá til sín góða gesti til að fjalla um helstu viðburði á sviði þjóðfélagsmálanna, pólitíkina, efnahagsmálin, sigra og sorgir þjóðarinnar og lærdóminn af árinu sem er að líða.
Hjá Lindu verða valinkunnir álitsgjafar og þá munu borgarfulltrúar setjast hjá Sigmundi Erni en mikið hefur gengið á í Ráðhúsinu á árinu sem er að líða. Sveitarstjórnarkosningar voru á árinu sem skilaði stærri og sundurleitnari borgarstjórn en áður hefur orðið.
Silja Aðalsteinsdóttir og Óttarr Proppé verða í spjalli hjá Lindu Blöndal um menningarárið – aðallega bækurnar, leikhússýningarnar og íslensku kvikmyndirnar 2018.
Snapchat stjörnurnar Eva Ruza og Hjálmar Örn hitta Snædísi Snorradóttur líka og fara yfir árið eins og þeim kemur það fyrir sjónir – var árið glamúr og gleði eða eitthvað annað?
Förum einnig yfir öryggisatriðin vegna áramótagleðinnar með fulltrúum frá Landsbjörgu og Neyðarlínunnar.
Líf og fjör og gestagangur í tvo tíma samfleytt á gamlársdag! – Á Hringbraut
Ykkur að kostnaðarlausu – alltaf.