Ljóðskáldið, rithöfundurinn, vísindamaðurinn og náttúruverndarsinninn Ari Trausti Guðmundsson var gestur Sigmundar Ernis í lestrarhestaþættinum Bókin sem breytti mér á Hringbraut í gærkvöld.
Þáttinn má sjá hér á vefnum hringbraut.is, en þar ræðir hann þær bækur helstar sem hafa haft mikil áhrif á hann en þar á meðal er bók föður hans, Guðmundar frá Miðdal um Fjallamenn, en svo nefnist bókin, en hún opnaði heim víðerna og öræfa fyrir Ara ungum - og hann hugsaði með sér; svona vil ég verða, úti að skoða náttúruna.
Og það gekk eftir.
Hann nefnir líka þykka bók sem segir sögu landkönnuða innan vísindafélags New York, sem hann er reyndar orðinn félagi í, en aðspurður hvort búið sé að kanna allan heiminn segir hann að því fari fjarri; stór landsvæði í Burma, Ekvador og á Suðurskautslandinu, sem Ari heimsótti nýverið séu enn ókönnuð og mikill hluti hafsins sem þekji tvo þriðju hluta jarðar.
Þriðja bókin sem Ari Trausti mætir með í þáttinn er ein ljóðabóka Jóhannesar í Kötlum, góðvinar föður hans, en ljóð og lífsskilningur Jóhannesar hafi haft mikil áhrif á hann í gegnum tíðina.
Bókin sem breytti mér er á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum klukkan 20:30.