Ari fer með ms í gin ljónsins

\"Það er þannig, að ef menn vilja hafa áhrif á umræðuna þá verða þeir að vera þar sem umræðan fer fram og gera grein fyrir máli sínu. Okkur líður ekkert illa í lýðræðislegum félagsskap, þar sem skipst er á skoðunum.\"

Þetta segir Ari Edwald, forstjóri Mjólkursamsölunnar í samtali við Kjarnann í dag í tilefni af inngöngu MS í Viðskiptaráð Íslands, félagsskap sem oftsinnis hefur gagnrýnt meinta einokunartilburði samsölunnar. \"Við munum eflaust líka læra margt af því sem sagt er innan ráðsins,“ segir Ari Edwald við vefinn, en Viðskiptaráð hefur meðal annars talað fyrir veigamiklum breytingum á íslensku landbúnaðarkerfi, sagt neytendur tapa mestu á núverandi kerfi og að æskilegast væri að afnema tolla af öllum vörutegundum.

Mjólkursamsalan er rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í eigu rúmlega 650 kúabænda um land allt.

Spurður hvernig hagsmunir og sýn Viðskiptaráðs fari saman með hagsmunum MS segir Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, það ekki víst að hagsmunir eða sjónarmið ráðsins fari öllum tímum saman með stjórnendum MS og fyrirtækinu. Mjólkursamsalan sé þó stórt rekstrar- og iðnaðarfyrirtæki og viðfangsefni þess séu af ýmsum toga. Bróðurpartur af málefnastarfi Viðskiptaráðs fari saman með hagsmunum MS. Auk þess sé það gott fyrir starfið að skiptar skoðanir og ólík sjónarmið fái að heyrast í beinum samskiptum.