Ari Edwald, nýr forstjóri Mjólkursamsölunnar segir það mikinn misskilning að MS vilji ekki að minni aðilar á mjólkurvörumarkaði fái þrifist; þeir séu ekki þyrnir í augum samsölunnar heldur þvert á móti.
Ari hefur átt í miklum blaðadeilum Ólaf Stephensen framkvælmdastjóra Félags atvinnurekenda um samkeppni á búvörumarkaði þar sem sá síðarnefndi sakar þann fyrrnefnda um einokunartilburði - og hefur vekið athygli hvað þessir fyrrum samherjar hjá Samtökum atvinnulífsins og hjá 365 hafa látið stór orð falla hvor í annars garð.
Ari segir í Viðskiptamogganum í dag fagna nýrri samkeppni, hún trufli MS ekki á neinn hátt. Um litla aðila sé að ræða sem hafi í raun engin áhrif á markaðinn í heild sinni.
Ari segir að almennt sé umræðan um samkeppnismál á undarlegum stað, en Samkeppniseftirlitið sektaði MS um 370 milljónir króna fyrir samkeppnisbrot gegn mjólkurbúinu Kú í september í fyrra. Að mati eftirlitsins hafði MS misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að selja samkeppnisaðilum Kú, sem eru tengdir MS, hrámjólk á 17 prósent lægra verði en því sem Kú bauðst.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst að þeirri niðurstöðu í desember að fella yrði úrskurðinn úr gildi, vegna þess að MS upplýsti ekki eftirlitið um samning á milli fyrirtækisins og Kaupfélags Skagfirðinga, sem á hlut í MS og er einn þeirra aðila sem fékk hrámjólk á lægra verði. MS lagði samninginn ekki fram fyrr en við málflutning fyrir áfrýjunarnefndinni, þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hefði ítrekað beðið um skýringar og gögn frá fyrirtækinu.
Áfrýjunarnefndin taldi að henni væri því skylt að vísa málinu aftur til Samkeppniseftirlitsins. Áfrýjunarnefndin tók enga efnislega afstöðu til málsins heldur taldi að ekki hefðu komið fram fullnægandi skýringar af hálfu MS á framkvæmd samningsins fyrir nefndinni. Þess vegna ætti Samkeppniseftirlitið að rannsaka málið aftur, með hliðsjón af umræddum samningi, og komast að nýrri niðurstöðu um hvort MS hefði brotið samkeppnislög. Sú rannsókn stendur enn yfir